Seinasti prófdagurinn
Það er svona frekar langt síðan að ég bloggaði seinast. Um það bil svona eiginlega 6 mánuðir, þessi bloggfærsla er tileinkuð Söru. Sem er búin að suða í mér um bloggfærslu seinustu 6 mánuði.
Í dag var síðasti prófdagurinn minn í Háskólanum. Ég fór í 4 próf á tveimur vikum, ég vona bara að prófin hafa heppnast vel.
Það eina sem ég á núna eftir að gera sem tengist skólanum, er ritgerð sem ég þarf að gera í námskeiðinu efnahagslíf og þjóðfélag. Kennarinn minn var það æðislegur að láta mig fá ritgerðarefni sem var um auðvitað efnahagshrunið á Íslandi. Talandi um mann sem gæti ekki verið frumlegri, æji, ég veit ekki kannski er hann bara reyna eitthvað að tjá sig.
Ég er að fara til Svíþjóðar eftir 12 daga með Sæma, vinur hans er að fara að gifta sig, þannig við erum á leiðinni í brúðkaup. Gaman að því, ég sem er ekki eftir að skilja neina sænsku, er eftir að vera enskumælandi í brúðkaupinu. En það verðu bara stuð, hver veit nema að ég er eftir að koma heim, og ég er eftir að geta talað sænskuna eins og hún væri mitt móðurmál.
En nóg um það, þetta er ágætt blogg í bili.


